|
|
01.03.2008 16:20:39 / bjorg
Jæja, þá er kominn tími á blogg.... Það er sko búið að vera brjálað að gera á bænum..... Niels flutti inn á fimmtudaginn svo núna er verið að flokka draslið..... hverju á að henda, hvaða sjónvarp á að nota og hvað á að vera hvar  þetta er nú búið að ganga vel.... ég hélt reyndar að það yrði smá "stríð" um það hvað ætti að nota og hverju ætti að henda en þetta gekk algjörlega áfallalaust fyrir sig.....Bókahillan lítur út eins og bókasafnið í Panum..... við eigum 2 stk af öllum bókunum  gaman að því..... hún er amk ekki tóm á meðan..... Annars er það að frétta að ég er að fara í próf á mánudaginn..... Eða þetta er heimapróf.... 48 tímar !!! Hluti af bekknum mínum (grúppan mín) ætlar að hittast á mánudagsmorgunn í Panum og ræða svörin og reikna tölfræðina saman og fara svo heim og skrifa verkefnið...... þá veit enginn af svindlinu  ef kalla má þetta svindl..... Þessi áfangi er hvor sem er algjört djók !!!! Ég er sko búin að hafa það huggulegt en brjálæðið byrjar aftur á miðvikudaginn !!!! Þá get ég tekið sjónvarpið úr sambandi og byrjað að borða rúgbrauðssamlokur aftur  nei, það verður svo sem ágætt að komast aftur í rútínu.... Ég fékk æðislega afmælis-helgi á Íslandi..... Takk fyrir mig  Og Niels kom brúnn og sætur frá Austurríki..... mér skilst að ég megi bara ekki missa af næstu skíðaferð  það er aldrei að vita nema maður fari upp á tryggingastofu og setji auka summu í lífstryggingu og smelli mér svo í skíðaskóla  Ég og Lára erum að fara á tónleika í kvöld.... held að aðalhljómsveitin heitir Sprengjuhöllin og svo er Hjaltalín líka á dagsskrá...... það verður örugglega mjög gaman...... Jæja, þá hef ég ekki frá meiru að segja í þetta skiptið.... Niels er að fara að baka pítsu fyrir okkur Láru  umm.... súpergott !!!! Stay in touch, Björg
»
25.01.2008 00:19:28 / bjorg
Ég veit að ég er að skíta upp á bak með bloggið..... ég bloggaði sko þegar ég var heima á klakanum en það datt út svo ég er bara ekki búin að taka mig saman í andlitinu og byrja upp á nýtt..... Já, prófið búið, sem betur fer !!!! Þannig að nú get ég titlað mig sem 1/4 læknir...... BARA 3/4 eftir !!!!! En tíminn er fljótur að líða þegar maður er alltaf í kappi við hann..... áður en ég veit er ég farin að kalla mig dr. Björg, komin með krakka í leikskóla og búin að byggja hús við hliðina á mömmu og pabba í Garður city..... og Nilli altalandi íslensku  En eins og ég segi er heldur betur verið að njóta lífsins..... yndislegt að þurfa ekki að vakna við vekjaraklukku..... fór á kaffihús með stelpunum áðan..... og ég og niels höfum tíma til að elda..... Hann er núna á næturvakt..... er búin að vera síðustu 4 nætur að vaka yfir sjúklingum á rigshospitalet. Litla greyið..... á meðan sit ég og horfi á dr. House og sef mína 10 tíma Já, ég gleymi að segja frá því að ég fór í heimsókn á klakann og það var að sjálfsögðu yndislegt að komast heim...... reyndar var Bergrún í prófum svo við systurnar gátum ekki haldið "systradag" eins og við erum vanar..... en fjölskyldan fór út að borða, héldum spilakvöld (ræðum ekki hverjir unnu) og höfðum það huggulegt saman..... ég fór í íslenskt spinning, bæði með pabba og Ingu Láru, borðaði lambalæri, fisk og subway....... en ég og Sveinlaug klikkuðum á kjúklingasúpunni (sem verður ekki klikkað aftur á, Sveina mín!!!). Ég var svo heppin að lenda ákkurat í "snjóvikunni" sem gerði það að verkum að ég var ekki nærri því eins dugleg að kíkja út í heimsóknir eins og ef það hefði verið sól og sumarylur...... maður nennir bara hreinlega ekki úr náttfötunum í svona veðri !!!! Það er eiginlega óskrifuð regla að halda sig innan dyra og horfa á sjónvarpið undir heitri sæng  En jæja, klukkan að ganga 2 og ég er að hugsa um að horfa á einn dr. house i viðbót áður en ég fer í "seng".... þarf að vakna við vekjaraklukku á morgun..... ætla að reyna að hoppa í ræktina áður en ég á að mæta í vax niðrí bæ  Kveðja frá Köben 1/4 dr. Björg
»
18.12.2007 21:22:50 / bjorg
Já enginn verður óbarinn biskup..... Ég veit ekki hvaða snilling datt þetta í hug og það getur vel verið að þetta virki vel fyrir prestana í landinu...... en þá spyr ég: Ef hægt er að segja að maður getur ekki orðið biskup án þess að vinna fyrir því = vera barinn...... hvað þarf þá til að verða læknir????? Ef við höldum okkur við líkinguna þá held ég að mér sé svo illa misþyrmt.... Því aðra eins geðveiki hef ég aldrei kynnst !!!! Hvað með: Enginn verður læknir án lýtis = ég er náföl, með baugu niður á höku, hef engann tíma til að kaupa jólaföt.... og passa ekki lengur i gömul föt, mamma litaði á mér hárið með búðarlit !!!!! og engin hreyfing og bara borðuð eintóm óhollusta..... já og hef heldur ekki komist í vax !!!! Gullfalleg stelpan.... Annars erum við Niels bara hamingjusöm þó við sjáumst ekki mjög oft..... En við ætlum að fara til Berlinar í janúar og vinna upp tapaðan tíma Í danmörku gengur allt námskerfi út á læsemakker.... þar sem hópur hittist og ræðir námsefnið.... ég og lotta höfum verið að lesa saman og nú kom Shireen inn í gruppuna..... Við gátum hins vegar ekki lesið saman þannig að nú sit ég eftir með engann læsemakker !!! Algjört klúður.... Ég er svo sem ekkert vön þessu systemi og ætla bara að gera þetta ein !!!! Hef jú alltaf Bennike ef ég skil ekki eitthvað..... svo er ég líka að spotta (kíkja á líkamsparta með nálum í með íslensku stelpunum. Það gengur ágætlega..... við krossum bara fingurna og vonum það besta !!!! En það verða þvi miður engin jólakort í ár !!!! Þannig að ég sendi bara jólakveðju til alla og gleðilegt nýtt ár...... og takk fyrir það gamla  Ég get sko lofað ykkur að það verða nokkur nýársheiti hjá mér þetta árið.... Jæja, ætla að fara að sofa..... ekki veitir af !!! Mér finnst ég alltaf vera nýsofnuð þegar klukkan hringir á morgnanna....... alveg ótrúlegt  Hafið það gott í jólafríinu, borðið yfir ykkur og njótið þess að hitta familíuna og vini..... Ég kem 22.des og fer aftur til köben 27. Ég ætla sko að njóta þess að láta elda ofan í mig !!! Jólakveðja, Björg
»
24.10.2007 21:24:43 / bjorg
Já það er ekki mikill tími til að blogga þessa dagana..... Ég er bókstaflega að drukkna í lærdómi...... læri ca. frá 8-23 á hverjum degi...... (kannski aðiens minna um helgar) þetta er hreinn próflestur í marga mánuði !!! En það er nú samt þannig að það er enginn sjens að halda áætlun þessa önnina hversu mikið sem maður lærir Held að fólk geri sér ekki grein fyrir hvað þetta er svakalegt..... ég hef ekki tíma til að hringja í vini mína, ég hef ekki tíma til að elda mat (síðustu vikur hefur hafragrautur í örbylgjuofninum með sultu verið vinsæll), sé Niels þegar ég býð honum góða nótt og þegar við vöknum svo um morguninn, fæ samviskubit yfir að eyða tíma í að hengja þvottinn upp á snúru.... o.s.frv. Eiginlega finnst mér samviskubitið verst !!!! Þegar ég svo tek mér pásur þá er ég alltaf með samviskubit eða að hugsa um námið..... alveg óþolandi En það er líka margt jákvætt..... er núna í krufningarnámsskeiði og það er hreinlega toppurinn á tilverunni..... mér finnst það alveg hrikalega gaman !!! Ég og Lotta erum líka að standa okkur.... held ég verði bara að gerast skurðlæknir Hún Berta okkar (við köllum líkið okkar Bertu) er líka með fallegar æðar og vöðva, sem gerir þetta ennþá skemmtilegra...... Við skötuhjúin smelltum okkur svo út í sveit til foreldra Niels..... og þar var sko sofið, ekki lesið orð, riðið ísl hesti, keyrt 8 gíra trakktor og borðað góðan mat...... guð hvað ég þurfti líka á þessari helgi að halda það var svo miklu auðveldara að hætta að hugsa um námið þegar maður er ekki í köben Svo eru mamma, Bergrún, amma Björg og afi Villi að koma í heimsókn á morgun....... það verður yndislegt. Hlakka hrikalega til Ætla sko að njóta þess að vera með þeim..... mér skilst að það verður eldað ísl lambalæri !!!! umm...... jæja, ætli það sé ekki kominn tími til að fara að sofa...... langur dagur framundan  Hafið það gott......
»
24.07.2007 21:29:29 / bjorg
Ég hef
ákveðið að taka mér sumarfrí með bloggið. Byrja aftur á
fullum krafti þegar ég kem aftur til Köben !!
»
01.07.2007 18:27:31 / bjorg
Roskilde
baby here we come......
Þá erum við Birna búnar að standa í
rúma 3 tíma í röð til að komast inn á svæðið..... í sól og
sumaryl.
Smelltum upp tjaldinu okkar.....
tróðum okkur inn á milli og reyndar lokuðum einn inni úps.....
það reddast. Maður sá ekkert annað en tjöld út um allt
!!!!
Við ætlum svo á svæðið, sennilega á
miðvikudaginn.
Annars erum við familyan búin að
hafa það mjög gott saman í Danmörku.
Þarf að fara að panta pizzu......
sjáumst 11. júlí 
»
12.06.2007 17:35:55 / bjorg
Þá er ég
búin að fá út úr prófunum sem ég tók í maí og náði þeim báðum
!!! Er mega-ánægð. Þannig að ég fæ sumarfrí eftir 2 vikur
ljúft....
Núna er reyndar brjálaður hiti í
Köben..... Þetta er eiginlega meira óþægilegt en notalegt.
Algjörlega ómögulegt að lesa nokkurn skapaðan hlut !!! Svo eru
skólastofurnar eins og sauna þannig að ekki heldur maður
einbeytingu þar.... Sef svo bæði með opna hurð og glugga......
hlakka til að fá rigningu um helgina.....
Jæja, Lára mín er að mæta í mat.....
Skvísan er á fullu að leita sér að íbúð þessa dagana.
Ætlaði bara rétt að láta vita að ég
væri í lífi.....
Ætla að fara að elda.....
Hef 3 markmið í sumar:
Æfa eins og brjálæðingur
Læra að elda
Fara í útileigur......
»
31.05.2007 17:50:47 / bjorg
Jæja, þá
eru allir orðnir þreyttir á síðustu færslu..... ég er ekki
alveg búin að hafa tíma og vera í rétta mood-inu til að henda
inn bloggi.
Núna er ég búin með 2 stærstu prófin
og bara eitt próf eftir...... ég er reyndar ekki að komast aftur í
gang.... alveg hrikalega erfitt !!! Ég þori ekkert að kommenta um
það hvernig mér gekk í prófunum því ég hef ekki hugmynd um hvernig
þeir meta þetta. Vona svo innilega að ég hefi náð að koma þessu frá
mér á sæmilegri dönsku.....
Annars er það nú bara að frétta að
mamma mín á afmæli í dag !!! Til lykke..... Og Niels vinur minn á
líka afmæli þannig að ég er ekki búin að gera annað en að syngja
afmælissönginn í allan dag Smellti mér reyndar í klippingu og
litun enda ekki sjón að sjá mig eftir próflesturinn.....
Svo á Lára mín afmæli á
morgun..... Það verður sko skvísupartý á Peter Bangs Vej á
morgun !!! Svaka stuð..... Hlakka svo til að hitta allar
stelpurnar..... 
Jæja, ætla að fara að horfa á tv eða
eitthvað annað hyggeligt..... nenni hreinlega ekki að fara að
lesa..... verð rosalega dugleg um helgina í staðinn 
Kveðja frá Köben !!!
»
07.05.2007 11:51:52 / bjorg
Þið
verðið að afsaka bloggleysið !!! Núna eru 2 vikur í próf og
lítið annað gert en að læra, læra og...... humm...... læra
!!!!! EInstaka sinnum hoppað á wc og smellt í sig einhverju
fljótlegu (eins og t.d. nammi) þegar hungrið segir til
sín....
Fer í próf 22, 23. og 25. maí og svo
seinasta prófið 25, júní !!!!
22. maí er spot-próf sem er
smásjáarpróf þar sem ég fæ 10 sýni sem ég á að
greina.....
23. fer ég í þrefalt próf.....
(danir eru mikið fyrir það að smella öllu bara í eitt próf....
alveg óþolandi !!!). Í þetta sinn er það anatomya, lífefnafræði og
lífeðlisfræði..... ótrúlega skemmtilegt 
25. maí er erfðafræðipróf..... er að
vona að Haukur Ægis komi mér í gengum þetta próf þar sem þrefalda
prófið fær allan minn tíma næstu 2 vikurnar !!!! Ég þarf bara að
vera búin að ná erfðafræðinni fyrir 7.önn en ef ég næ ekki prófinu
23. maí þá fæ ég ekki að halda áfram á 3. önn..... Þannig að ég
treysti gjörsamlega á að muna eitthvað úr erfðafræðinni í
FS.....
25. júní er svo
sálfræði......
Spennandi sumar framundan hjá mér

»
28.04.2007 19:47:09 / bjorg
Eitt kvöld
fyrir nokkrum vikum var ég að spjalla við Birnu systur í símann og
hún var eitthvað að væla yfir því hvað það væri mikið að gera í
skólanum og að hún ætti eftir að semja ljóð á ensku og
eitthvað...... Við fórum svo bara að bulla eitthvað ljóð, sem var
reydnar stórskemmtilegt í lokin..... okkur fannst það að minnsta
kosti !!! Jæja, svo var endaði ljóðið í ljóðakeppni í FS Og
maður er að frétta það á bæjunum og margir sem stálu ljóðum af
netinu eftir stórfræg skáld...... en ég veit það bara að Birnu ljóð
lenti í 2. sæti !!!! ha ha ha.... algjör snilld....... og það
munaði 1 stigi á henni og 1. sætinu. Þannig að ég má til með að
smella ljóðinu hérna:
How can it
be?
Janet Jackson
Michael Jackson
black
white
How can it be?
Different father?
Different mother?
Plastic surgery?
En
það sem er að frétta frá Köben er það að á mánudaginn eru 3 vikur í
próf !!!!
Við bekkurinn smelltum
okkur í Fælled Parken og spiluðum fótbolta..... stelpur á móti
strákunum..... og við rétt töpuðum !!! En ég var mjög hissa hvað
skvísurnar gátu..... hörku efnilegar ég er ekki frá því að ég
sakna þess svolitið að spila..... leikfimi í 10. bekk og ég tala nú
ekki um hópinn sem var þegar Hannes var að þjálfa Svo voru
grillaðar pylsur og legið í sólinni..... Þegar við vourm bara
7 eftir og sólin farin að setjast þá smelltum við okkur í Nettó og
keyptum nautasteik !!!! Fórum svo heim til Jóns og Niels og
borðuðum á okkur gat..... Svo smellu strákarnir Hannibal í tækið
(ég reyndar að fá þá til að koma með mér á videóleigu og leigja The
Notebook.... nei þeir voru ekki til í það !!!!) Ég gafst svo upp í
miðri mynd og hjólaði heim.
Ótrúlega skemmtilegur
dagur..... Mér þykir svo vænt um bekkinn minn.
Ég hef svo setið við
skrifborðið mitt í allan dag og reynt að lesa...... ég var ekki
alveg nógu virk í dag..... það var ekki fyrr en eftir kvöldmat sem
ég komst almennilega í gang !! Þannig að morgundagurinn verður
helgaður Geneser og Blaustein (sem eru höfundar bóka sem ég er að
lesa)
En já, einar
gleðifréttir í viðbót...... ÉG ER BÚIN MEÐ ALLAR SKÝRSLURNAR ÞESSA
ÖNNINA !!!!! Það er sko léttir !!!!!!
Jæja, ég er farin að
horfa á tv eða kíkja á glósur eða eitthvað..... jafnvel að lakka
neglurnar......
Kveðja frá Kóngsins
Köben 
»
22.04.2007 19:38:27 / bjorg
Það er
aldeilis mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast þanníg
að ég er að hugsa um að skripa bara stikkorð og
stikksetningar í staðinn fyrir 3 blaðsíðna blogg..... Vona að
ég gleymi engu 
Inga Lára og Kristín mættu til
Kaupmannahafnar á miðvikudaginn
SÁLAR- OG STUÐMANNABALL !!!!
Ótrúlega gaman..... fullt af Íslendingum og örfáir
Danir.
Skrópaði í skólanum á
fimmtudaginn..... enda sumardagurinn fyrsti Við fórum á Strikið
en enduðum svo heima upp í rúmi með nammi og bíómynd !!! Þröngt
mega sáttir sofa.... nenntum ekki að blása upp dýnuna svo við
sváfum bara 3 í rúminu !!!
Inga fór heim á
föstudeginum Við Stína lærðum smá þegar ég kom
heim úr skólanum..... elduðum geggjaðan
kjúklingarétt......
Fórum í box..... Niels bekkjarbróðir
minn kom með. Hrikalega erfitt !!! Við Stína gengum svo út eftir
klukkutíma og drifum okkur í sturtu og hlupum upp á lestarstöð til
að ná lestinni til Husum...... þar var stórleikurinn Husum BK -
Njarðvík !!!! Leikurinn endaði 1-1 en Rabbi áttir stórleik Við
fórum svo beinustu leið niður í bæ og fengum okkur að borða !!!
Orðnar sársvangar..... Hittum svo Lottu og röltum niður á Nyhavn og
keyptum okkur ís og sátum og spjölluðum í sólinni (reyndar var
skítkalt í skugga). Nenntum svo ekki að gera neitt um kvöldið.....
enduðum á því að borða nammi og horfa á spólu.... Gleymdum að
teygja eftir boxið og vöknuðum með massívar harðsperrur !!!!
Áiiiii
Svo lærðum við í allan dag !!! Og
bökuðum súkkulaðiköku Stína mín fór svo heim til Árhúsa seinni
partinn og ég beint í ræktina..... og svo aftur að lesa
!!!!
Án efa, yndisleg vika !!!! Ótrúlega
gaman að hafa ykkur hjá mér.....
En þessi vika var hins vegar lognið
á undan storminum því á morgun eru nákvæmlega 4 vikur í fyrsta próf
og ég þarf vægast sagt að lesa frá morgni til kvölds !!! Þessar
elskur eru nú ekkert að gera þetta auðvelt fyrir mann því þeir
kenna langt fram að prófi og það er hægara sagt en gert að halda
áætlun !!! Hvað þá að byrja próflestur á fullu ofan á það..... en
það er um að gera að vera jákvæð og skipulögð..... ef allt fer til
fjandans þá héf ég alltaf sumarfrí sem ég get nýtt fyrir
upptökupróf í ágúst samt er það ekki efst á óskalistanum
!!!
Jæja, ætli ég leyfi mér ekki að
horfa aðeins á tv fyrir svefninn.....
Góða nótt 
»
14.04.2007 14:42:50 / bjorg
Hvað
segið þið?? Er sumardagurinn fyrsti að ganga í garð á
klakanum á fimmtudaginn?? Ég sá á vf.is að það er spá
rigningu þannig að ég ætlaði bara að hvetja ykkur öll sömul
til að panta ykkur far til Kaupmannahafnar sem fyrst !!!
Þvílíkt veður..... við erum að tala um steikjandi hita. Ég
labbaði aðeins út í búð áðan og ég var gjörsamlega að stikna
og ég var bara í kvartbuxum og þunnri peysu..... öllu fylgir
reyndar kostir og gallar..... það er hrikalega erfitt að
sitja inni og læra í þessu veðri but on the other hand þá er
yndislegt að vakna á morgnanna með sólina í andlitinu

Í morgun sat ég úti á "verönd" og
notaði tímann í að læra utan að og vera í sólbaði..... Fínt
mál..... er komin með roða í kinnarnar og svona.... Nema hvað, svo
smellti ég mér í það að þrífa þar sem bekkurinn minn er að koma í
heimsókn á eftir..... ok, ennþá allt í góðu. Jæja, svo ætla ég nú
að taka eldhússtólana inn aftur (höfðu verið úti síðan um
morguninn) en þá voru þeir fastir í tjörunni sem er undir
steinunum á veröndinni !!!! GREAT..... ég þarf sem
sagt að fara og kaupa mér tjöruhreinsi Jæja svo var ég
búin að þrífa herbergið hátt og lágt, meira að segja klósettið (sem
mér finnst óþolandi).... svo er ég að stíga úr sturtunni og búin að
þurra mér og svona..... en þá..... byrjar að fossa vatn úr loftinu
!!! Og yfir allt klósettið !!!!! og ég nýbúin að
þrífa.....
Var ekki örugglega föstudagurinn 13.
í GÆR??????
Þetta er auðvitað frábær tímasetning
þar sem ég á von á 15-20 manns í heimsókn í kvöld..... 2 stólar í
boði og ekki hægt að pissa öðruvísi en að fara í sturtu í leiðinni
nei þetta er reyndar ekki svo slæmt..... er að reyna að
gera söguna aðeins meira krassandi. Ég redda stólum úr sameiginlega
eldhúsinu og vona að fólkið á efri hæðinni fari ekki í sturtu oft á
dag.....
En annars er bara allt gott að
frétta. Smellti mér á fredagsbar í gær og það var bara rosa
gaman...... við sátum bara úti í garði til klukkan 18 og sleiktum
sólina..... þessir læknanemar þurfta ekkert að lesa 
Á morgun byrjar alvaran......
reyndar með smá pásu þegar Inga og Stína eru í
heimsókn.......
Jæja, þetta átti bara að vera
örstutt blogg..... verð víst að fara að slétta á mér hárið og setja
nammi í skálar og gera allt ready áður en að liðið
mætir.....
Ég ætla nú bara að vitna í hann
Hreim, vin minn, í Landi og sonum..... LÍFIÐ ER YNDISLEGT
!!!!!
»
11.04.2007 18:44:03 / bjorg
Home,
sweet home....... Já þá er páskafríið búið. Það var æðislegt
að komast í smá frí heim á klakann en það var reyndar frekar
stutt og ég náði náði alls ekki að hitta alla sem ég
vildi..... en samt betra en að hitta engan 
Ég gerði lítið annað en að vera með
fjölskyldunni minni, fór í nokkrar heimsóknir og hitti stelpurnar
(= Ingu, Sveinu, Stínu og Siggu) og svo BORÐAÐI ég og
svaf..... og ekki má gleyma rúsínunni..... horfði á upptöku af
Grey´s anatomy !!!!
Ég var smá leið að þurfa að fara en
svo þegar ég var komin heim til Köben þá gleymdist það alveg.....
mér finnst æðislegt að búa hérna 
En nú hefst lesturinn fyrir
alvöru..... 6 vikur í próf !!!! Ég og Lotta ætlum að byrja að
vinna saman í næstu viku.... ég er reyndar ekki búin að frumlega
allt enda algjörlega ómögulegt að ná því..... og ég fæ 2 daga í
upplestrarfrí !!! Ég átta mig hreinlega ekki á þessu skipulagi. Og
ég er alltaf í skólanum..... hrikalega langir skóladagar.......
planið hjá flestum í bekknum er að fara fljótlega að droppa
fyrirlestrunum og lesa í staðinn. Ég er alltaf bara svo hrædd um að
missa af einhverju mikilvægu 
Svo er spáð bongóblíðu um
helgina..... bekkjarsystir mín bauð bekknum í afmæli á
laugardaginn..... og það byrjar klukkan 13 en ég ætla ekki að mæta
því ég verð að lesa..... vil heldur eyða tímanum mínum með Ingu og
Kristínu sem koma í næstu viku í heimsókn !!!! Sálin og Stuðmenn í
Köben SÓDÓMAAAAA...... klikkar ekki.
Jæja, ætla að fara horfa á tv.....
þetta er búinn að vera langur dagur !!!
Take care, friends......
»
01.04.2007 13:03:09 / bjorg
Ég var
tekin..... Lára náði mér heldur betur í gabbinu í ár og ég
var meira að segja mjög lengi að átta mig á því að hún væri
bara að grínast í mér. Það var reydar erfitt fyrir hana að
láta mig hlaupa en hún laug að mér að hún væri komin inn á
kollegið mitt og myndi flytja 1. júní !!! Ég var ekki lengi
að grípa símann og hringja í hana...... en þá fékk ég bara:
"1. APRÍL !!!"..... gamna að þessu.
Já, aldeilis
búin að vera busy þessa helgi..... ég var reydnar stutt í skólanum
á föstudaginn en það er ekkert til sem heitir stuttur vinnudagur þó
að skólinn sé búinn fyrir hádegi = beint heim að læra Svo um
kvöldið hittust íslensku læknanemarnir og við fórum út að
borða..... rosalega gaman !!!
Á laugardaginn kom Nils, sænski
vinurinn minn frá Blend, í heimsókn og við röltum bara niðrí bæ og
fengum okkur ís á Nyhavn og svona...... Hann fór svo og hitti
systur sínar og ég beint heim að LÆRA.... var reyndar ekki mjög
effective. Hjólaði svo aftur niðrí bæ og hitti Láru, Imbu, Önnu og
Söndru og við út að borða á mexikóskum stað..... rosa góður
!!!
Í dag er ég hins vegar búin að vera
mjög dugleg í lestrinum...... er svo að fara í body combat og body
pump á eftir..... já, er að reyna að vera dugleg í ræktinni
líka..... það bíður mín risa páskaegg þegar ég kem heim

Já, það styttist í heimkomu..... og
það verður bara ein skólabók með !!! Það er aldrei að vita nema
maður leyfi sér að sofa út eins og 1-2 morgna Ohh, hvað það
verður gott að komast aðeins í burtu.... ég skal reyna að taka smá
af þessu yndislega veðri með mér á klakann...... það er varla hægt
að lesa í þessu veðri !!!
Ég efast um að ég blogga meira í
þessari viku..... er að fara í rosalega tilraun og ég og Lotta
þurfum eiginlega að klára líka fyrirlestur sem við eigum að flytja
strax eftir páskafrí..... hún fer neflilega líka heim í páskafríinu
!!! Stemning.... Hlakka svo til að koma heim !!!! See you
soon....
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
|